Hleypt inn í hollum eftir að H&M opnaði í Smáralind, starfsfólk steig trylltan dans fyrir opnun

Sænska fataverslunin H&M opnaði í Smáralind í hádeginu í dag. Nútíminn sagði frá því í morgun að fáir væru mættir í röð fyrir utan verslunina þegar rúmir tveir tímar voru í opnun en þá höfðu rúmlega 20 manns tekið sér stöðu í röðinni.

Skömmu síðar fór að fjölga verulega og þegar um klukkutími var í opnun hafði myndast löng röð. Áður en fólki var hleypt inn í verslunina stigu starfsmenn trylltan dans sem vakti gríðarlega kátínu nærstaddra.

Fljótlega eftir að verslunin opnaði var farið að hleypa fólki inn í hollum og fólk bíður enn fyrir utan verslunina. Verslunin veitir 20 prósent af­slátt­ af öll­um vör­um í dag og þá fá fyrstu 1.000 gest­irnir gjafa­kort.

Verslunin í Smáralind er sú fyrsta sem opnar hér á landi en til stendur að opna verslanir í Kringlunni og í miðborg Reykjavíkur.

Auglýsing

læk

Instagram