Hljómsveitin Banglist gefur út myndband við lagið Come for me

Íslensk-norska hljómsveitin hefur verið að vekja verðskuldaða athygli í tónlistarsenunni í Berlín undanfarið. Í dag sendi hljómsveitin frá sér myndband við sitt annað lag, Come for me. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Sjá einnig: Hljómsveitin Banglist vekur athygli í Berlín – Hlustaðu á lagið Fearless

Hljómsveitin sendi fyrr í sumar frá sér sinn fyrsta singúl, Fearless. Banglist samanstendur af tveimur Íslendingum, þeim Ásdísi Maríu, söngkonu og Pétri Karl, gítarleikara, og tveimur Norðmönnum, Per Tore Monstad, bassaleikara og Ylvu Brandtsegg, trommara.

María Guðjohnsen og Björn Leó Brynjarsson leikstýrðu myndbandinu sem er ansi skrautlegt.

Auglýsing

læk

Instagram