Hótel ráðleggur túristum að drekka flöskuvatn, engin ástæða til að vara við kranavatni

Gestir á Adam Hotel við Skóla­vörðustíg 42 eru hvatt­ir til þess að drekka flöskuvatn frekar en vatnið í kran­an­um. Myndir sem sýna fram á það voru birtar í hópnum Bak­land ferðaþjón­ust­unn­ar á Face­book.

Veitur, dótturfélag Orkuveitunnar, segir í færslu á Facebook að engin ástæða sé til að vara við kranavatninu.

„Atvinnulífið treystir á að við útvegum því ferskt og gott vatn og við leggjum okkur fram um að gera það,“ segir í færslu Veita.

Við fengum sendar þessar myndir teknar á hóteli á Skólavörðuholtinu. Öll 100 sýnin sem tekin voru til rannsókna úr vatnsveitunni okkar í Reykjavík árið 2015 voru pottþétt. Þess vegna er engin ástæða til að vara við kranavatninu nema eitthvað sé bilað innanhúss.

Á Adam Hotel kosta tveir lítrar af vatni 400 krónur. Vatnið er í merktri flösku frá hótelinu en óvíst er hvaðan það er komið.

Auglýsing

læk

Instagram