Hvetur verslunareigendur til þess að hugsa betur um umhverfið: „Virðast flestir vera með hausinn upp í rassgatinu á sér þegar kemur að þessum málum“

Ingólfur Páll Matthíasson, umhverfissinni og leiðsögumaður, hefur hvatt íslenska verslunareigendur til þess að hugsa betur um umhverfið eftir að hann opnaði ruslagám við verslun Krónunnar á dögunum. Ingólfi blöskraði innihald gámsins en þar var mikið af mat sem að sögn hans var í góðu lagi með. Frá þessu er greint á DV.is.

Ingólfur birti mynd úr gámnum á Facebook síðu og myndin hefur vakið mikla athygli. Hann segir í samtali við DV að þó svo að myndin sé tekin í ruslagámi við verslun Krónunnar sé sú verslun alls ekki sú eina sem hendi mat. Hann segir þó fyndið að Krónan státi sig að því að minnka matarsóun.

Við leggjum áherslu á að sýna umhverfinu virðingu og leitum sífellt nýrra leiða við að minnka matarsóun og fækka vistsporum Íslendinga. Í verslunum Krónunnar bjóðum við upp á þroskað grænmeti, ávexti, útlitsgallaðar vörur og vörur á síðasta söludegi á lækkuðu verði í stað þess að vörum sé fargað,“ segir á vef Krónunnar.

„Þetta er móðgun við fátækt fólk, þetta er móðgun við afurðir bænda og þetta er mikil móðgun við umhverfið en eins og sjá má myndinni er plast utan um þetta allt,“ segir Ingólfur við DV.

Við erum að verða á pari við mestu umhverfissóða heims og það virðast flestir vera með hausinn upp í rassgatinu á sér þegar kemur að þessum málum

Ingólfur vonast til þess að verslunareigendur fari að taka sér tak og hugsa betur um umhverfið.

Hér má sjá myndina sem Ingólfur deildi úr ruslagámi við verslun Krónunnar

Auglýsing

læk

Instagram