Hvítur Hvítur Dagur í forvali til evrópsku Kvikmyndaverðlaunanna

Hvítur Hvítur Dagur er í forvali til evrópsku Kvikmyndaverðlaunanna í ár. Myndin er ein af 46 myndum í forvalinu þetta árið og ein af aðeins fjórum norrænum myndum á lista. Evrópsku Kvikmyndaverðlaunin eru haldin í 32.sinn þetta árið en hátíðarhöldin fara fram í Berlín 7.desember. Um 3600 meðlimir evrópsku Akademíunnar munu á næstu vikum kjósa á milli mynda. Tilnefningar verða tilkynntar 9.nóvember á evrópsku Kvikmyndahátíðinni í Sevilla, Spáni. Á næsta ári 2020 verða verðlaunin í fyrsta skipti haldin á Íslandi, í Hörpunni.

Myndin fjallar um lögreglustjórann Ingimund sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Hann einbeitir sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst.

Með önnur helstu hlutverk myndarinnar fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Arnmundur Ernst Bachman, Þór Tulinius og Sverrir Þór Sverrisson. Myndin er framleidd af Join Motion Pictures og Sena sér um dreifingu hennar á Íslandi.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsk/íslensku Vetrarbræður, sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningu í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss.

Auglýsing

læk

Instagram