Bergmál vann til verðlauna í Locarno

Í gær var tilkynnt að Íslenska kvikmyndin Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson hefðu hlotið aðalverðlun dómnefndar unga fólksins við hina virtu kvikmyndahátíð í Locarno í Sviss.

Í ræðu sinni þakkaði Rúnar dómnefndinni traustið og sagðist einstaklega stoltur af að taka við þessum verðlaunum fyrir hönd þeirra hundruði einstaklinga sem komu að því að gera kvikmyndina Bergmál.

Síðan Bergmál var Heimsfrumsýnd síðasliðin sunnudagur við standandi lófaklapp í 3000 manna kvikmyndahúsinu FEVI í Locarno, hafa kvikmyndagagnrýnendur og áhorfendur lofað Bergmál. Eins gerðist hin óvanalegi atburður að ákveðið var að bæta við sýningum á hátíðinni vegna mikillar aðsóknar sem og fjölda áskoranna frá áhorfendum.

„Nógur var heiðurinn fyrir Bergmál að hafa komist í gegnum nálaraugað við að vera valin á þessa mikilvægu hátíð en nú er maður hálf orðlaus, okkur hefði aldrei þorað að dreyma um þvílíka byrjun fyrir myndina okkar,“ sagði Rúnar leikstjóri Bergmáls.

Síðan „Síðasti Bærinn“ var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2006 hafa kvikmyndir Rúnars ferðast um helstu hátíðir heimsins (Cannes, Toronto, Sundance, San Sebastian…) og unnið yfir 130 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.

„Íslensk kvikmyndagerð er orðin þekkt stærð í heiminum og er þessi vegferð Bergmáls enn önnur staðfesting á gæðum og ótrúlegum árangri íslenskrar kvikmyndagerðar.Bergmál er listrænt djörf en á sama tíma einstaklega falleg og manneskjuleg mynd sem sameinar svo margt. Húmor, sorg og fegurð. Íslensk Jólamynd,“ sagði Lilja Snorradóttir framleiðandi.

Sena sér um dreifingu á Íslandi og fer Bergmál í almennar sýningar í nóvember.

Auglýsing

læk

Instagram