today-is-a-good-day

Hvítur Hvítur Dagur valin besta myndin í Króatíu

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason var valin besta mynd kvikmyndahátíðarinnar í Motovun í Króatíu sl. laugardagskvöld. Ingvar E. Sigurðsson, aðalleikari myndarinnar, tók við verðlaununum.

Sjá einnig: Hvítur Hvítur Dagur frumsýnd hér á landi sjötta september – Sjáðu stikluna

Það var einróma ákvörðun dómnefndar að velja myndina en þetta eru þriðju verðlaun myndarinnar. Ingvar vann Louis Roederer Rising Star verðlaunin í Cannes og einnig leikaraverðlaunin á Alþjóðlegu Transilvaníu Kvikmyndahátíðinni í Rúmeníu.

Myndin fjallar um lögreglustjórann Ingimund sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Hann einbeitir sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst.

Með önnur helstu hlutverk myndarinnar fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Arnmundur Ernst Bachman, Þór Tulinius og Sverrir Þór Sverrisson. Myndin er framleidd af Join Motion Pictures og Sena sér um dreifingu hennar á Íslandi.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsk/íslensku Vetrarbræður, sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningu í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss. Hvítur, hvítur dagurverður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi 6. september.

Auglýsing

læk

Instagram