Agnes Joy valin kvikmynd ársins

Edduverðlaununum 2020 voru gerð skil í sérstökum skemmtiþætti á RÚV í gærkvöldi.

Það voru kvikmyndirnar Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur og Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason sem sópuðu að sér verðlaunum og fengu sex styttur hvor. Agnes Joy hlaut meðal annars verðlaun sem besta kvikmyndin og fyrir besta handritið.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir sigurvegara Eddunnar 2020:

Barna- og unglingaefni ársins
Goðheimar

Framleitt af Netop Films og Profile Pictures

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Kveikur

Framleiðandi RÚV

Heimildamynd ársins
Vasulka áhrifin

Framleiðendur Sagafilm og Krumma films

Kvikmynd ársins
Agnes Joy

Framleiðandi Vintage Pictures

Leikið sjónvarpsefni ársins
Pabbahelgar

Framleiðendur Zik Zak og Cubs Productions

Menningarþáttur ársins
Kiljan

Framleiðandi RÚV

Mannlífsþáttur ársins
Svona fólk

Framleiðandi Krumma films

Skemmtiþáttur ársins
Áramótaskaup 2019

Framleitt af Republik fyrir RÚV

Íþróttaefni ársins ársins

HM stofan – HM kvenna í fótbolta

Framleiðandi RÚV

Stuttmynd ársins
Blaðberinn

Framleiðandi Hero Productions Iceland

Brellur ársins
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir og Haukur Karlsson

fyrir Ófærð 2

Búningar ársins
Margrét Einarsdóttir

fyrir Goðheima

Gervi ársins
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir

fyrir Ófærð 2

Handrit ársins
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir

fyrir Agnes Joy

Hljóð ársins
Gunnar Árnason

fyrir Agnes Joy

Klipping ársins
Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen

fyrir Agnes Joy

Kvikmyndataka ársins
Maria von Hausswolff

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikari í aðalhlutverki ársins
Ingvar E. Sigurðsson

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikkona í aðalhlutverki ársins
Katla Margrét Þorgeirsdóttir

fyrir Agnes Joy

Leikkona í aukahlutverki ársins
Ída Mekkín Hlynsdóttir

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikari í aukahlutverki ársins
Björn Hlynur Haraldsson

fyrir Agnes Joy

Leikmynd ársins
Hulda Helgadóttir

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikstjórn ársins
Hlynur Pálmason

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan fyrir Kveik

Tónlist ársins
Edmund Finnis

fyrir Hvítur, hvítur dagur

Upptöku- eða útsendingarstjórn ársins
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg

fyrir Söngvakeppnina 2019

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning
Dominos körfuboltakvöld – Stöð 2 Sport

Heiðursverðlaun Eddunnar 2020

Spaugstofan

Auglýsing

læk

Instagram