Konan í auglýsingu Frumherja í Fréttablaðinu er ekki Salka Sól

Tónlistarkonan Salka Sól hefur fengið fjölmargar fyrirspurnir í dag um hvort hún sé nýtt andlit Frumherja. Auglýsing sem birtist í Fréttablaðinu í dag sýnir konu er ansi lík Sölku Sól en

„Já, það eru margir að senda auglýsinguna á mig og spyrja úti þetta. Einn félagi minn sagði mér að senda bara reikning,“ segir Salka létt í samtali við Nútímann.

Við fyrstu sín virðist manneskjan í auglýsingunni vera svo lík Sölku að nánast ómögulegt er að um tilviljun sé að ræða. Auglýsingin fjallar um sérstakt morgunverð á bifreiðaskoðun í maí.

Orri Vignir Hlöðversson var laufléttur þegar Nútíminn náði í hann. Hann sagði að fyrirtækið væri ekki viljandi að afrita stíl Sölku enda hefði myndin verið tekin fyrir tveimur árum síðan.

„Ég hafði ekki kveikt á þessu sjálfur,“ sagði hann og bætti við að fyrirsætan hefði birst í ýmsum auglýsingum Frumherja undanfarin misseri.

 

Auglýsing

læk

Instagram