Iceland Airwaves kynnir 20 ný atriði – Stærsta Airwaves hátíð frá upphafi

Forsvarsmenn Iceland Airwaves tilkynntu í dag um 20 nýja listamenn sem munu koma fram á tónlistarhátíðinni í byrjun nóvember. Meðal listamanna sem voru tilkynntir í dag eru Dead Sea Apple, Toy Machine og Carpet en það voru tónleikar þessara sveita fyrir 20 árum síðan sem voru kveikjan að því að Iceland Airwaves var sett á laggirnar.

Í heildina eru um að ræða 240 atriði frá 25 löndum, sem gerir 20 ára afmælisútgáfuna stærstu Airwaves hátíð frá upphafi. Þar á meðal eru Ólafur Arnalds, Ásgeir, Blood Orange, Alma, Hayley Kiyoko, Cashmere Cat, Stella Donnelly og margir fleiri.

„Iceland Airwaves hefur lengi verið talin besta leiðin til að kynnast nýju uppáhalds tónlistinni þinni. Af þessum 240 atriðum eru yfir 150 íslensk bönd, sum þeirra þekkjum við vel en sum sem hafa aldrei komið fram á hátíðinni áður. Það stefnir allt í svakalegt afmælispartý 7. – 10. nóvember þar sem gleðin verður allsráðandi í hjarta Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar. Nánar um hátíðina hér. 

ÖLL ATRIÐIN SEM TILKYNNT ERU Í DAG:

Allanheimer • Alvia • Cola Boyy (US) • Bodypaint • Carpet • ClubDub • Dead Sea Apple • Dr Spock • Fufanu • Gabríel •  Grísalappalísa • Herra Hnetusmjör • Huginn • Klaki • Mosi •  Sylvia Erla • Team Dreams: Sin Fang, Sóley & Örvar Smárason • The Rhythm Method (UK) • Toy Machine

Auglýsing

læk

Instagram