Ólafur Arnalds í Háskólabíói

Grammy-tilnefndi tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hefur tónleikaferðalag sitt um heiminn með stórtónleikum í Háskólabíói, 23. maí næstkomandi.

Tónleikarnir fylgja eftir útgáfu plötunnar ‘some kind of peace’ en þetta verður í fyrsta skipti sem að efni af plötunni verður flutt opinberlega.

Þrjú ár eru síðan Ólafur kom síðast fram á Íslandi en tónleikarnir í Háskólabíó marka upphafið af langri tónleikaröð og eru þeir fyrstu af um 50 í mörgum af helstu tónleikahöllum heims í Norður Ameríku og Evrópu, s.s. Walt Disney Concert Hall í Los Angeles, Hammersmith Apollo í London og Tempodrom í Berlín.

„Við ætlum að vera í Háskólabíói í þrjá daga og æfa fyrir ferðalagið og enda svo tónleikum. Mér fannst varla annað hægt, eftir allar frestanirnar, að byrja þennan langþráða túr á Íslandi. Ég hef stundum sagt að mér finnist ekki eins og plata sé raunverulega komin út fyrr en ég er búinn að spila hana á tónleikum og nú er loksins komið að því!,“ segir Ólafur Arnalds.

Tónleikar Ólafs eru áhrifamikil upplifun fyrir augu og eyru en með honum á sviðinu verður strengjakvartett og slagverksleikari auk sjálfspilandi Stratus-píanóanna.

Tónleikagestir fá einstakt tækifæri til að sjá eina af stórstjörnum íslenskrar tónlistar á heimavelli áður en ferðinni er haldið áfram á erlenda grundu.

– Tvö verðsvæði verða í boði og kosta miðarnir frá 9.990 kr.
– Aðeins um 900 miðar verða í boði.
– Miðasala hefst 10. mars kl. 10 á tix.is/olafur
–  Forsala hefst 9. mars kl. 10: https://senalive.is/postlisti/
Nánari upplýsingar á Senalive
Auglýsing

læk

Instagram