Inniskór Kanye West vekja mikla athygli

Mikið fjaðrafok var í kringum rapparann og fatahönnuðinn Kanye West um helgina þegar hann mætti í brúðkaup vinar síns, rapparans 2 Chainz, í inniskóm.

Kanye mætti í brúðkaupið á laugardag ásamt eiginkonu sinni, raunveruleikastjörnunni og samfélagsmiðlamógúlnum Kim Kardashian West, í jakkafötum frá Louis Vuitton og inniskóm úr fatalínu sinni YEEZY, sem hann hannaði sjálfur.

Ekki nóg með það að rapparinn og hönnuðurinn hafi mætt í inniskóm við jakkafötin sín heldur voru skórnir nokkrum númerum of litlir, af myndum að dæma.

Aðdáendur Kanye og tískuspekingar veltu fyrir sér af hverju rapparinn mætti í inniskóm í brúðkaup, af hverju þeir hafi verið of litlir og hvort að um markaðssetningartækifæri hafi verið að ræða.

Nokkrir voru á því að þetta væri sniðugt hjá rapparanum því inniskórnir litu út fyrir að vera ótrúlega þægilegir

https://twitter.com/jayerosex/status/1031146220713140225?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed%7Ctwterm%5E1031146220713140225&ref_url=https%3A%2F%2Fwww.cosmopolitan.com%2Fentertainment%2Fa22767666%2Fkanye-west-too-small-yeezy-slides-2-chainz-wedding%2F

Þessi spáir því að allir verði í inniskóm og jakkafötum á næsta ári enda þykir Kanye mikill áhrifavaldur í tískuheiminum

https://twitter.com/OKardashWest/status/1031022832812281856

Athygli vakti að inniskórnir voru nokkrum númerum of litlir

https://twitter.com/LyricsFiyah/status/1031199924015194114

Þessi var hrifin af klæðnaði rapparans þangað til að hún sá skóna

https://twitter.com/Ghanasfinestx/status/1031096477857316865

Svo er þetta kannski bara markaðssetningartækifæri hjá rapparanum til að auglýsa inniskóna, en þeir fara fljótlega í sölu

Auglýsing

læk

Instagram