HönnunarMars 2021 í maí

Mars færist fram í maí 2021! Stærsta hönnunarhátíð landsins HönnunarMars fer fram dagana 19-23. maí 2021. 

Stjórn hátíðarinnar tók ákvörðun þess efnis, bæði í ljósi yfirstandandi heimsfaraldurs og óvissunni sem því fylgir og sömuleiðis gríðarlega góðum viðtökum bæði þátttakenda og gesta við HönnunarMars í júní sem fór fram dagana 24.-28. júní. 

HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hátíðin mun halda áfram að koma inn með krafti, veita innblástur og gleði ásamt að varpa ljósi þann kraumandi skapandi kraft sem hönnunarsamfélagið hér á landi hefur að geyma. Við vitum hvorki hvað framtíðin ber í skauti sér né hvernig hátíðarhald verður en ljóst er að alltaf verður þörf á samtalinu. Því ber okkur skylda að halda ótrauð áfram.
Það eru bjartari tímar fram undan, HönnunarMars 2021 verður með nýju sniði í takt við nýja tíma.“
Þórey Einarsdóttir, stjórnandi HönnunarMars 

HönnunarMars, sem eins og nafnið gefur til kynna, hefur frá upphafi 2009 farið fram í marsmánuði en hið óvenjulega ár 2020 færði hátíðina fram í júní. Um 80 sýningar og 100 viðburðir breiddu úr sér á höfuðborgarsvæðinu þar sem gestum gafst tækifæri að sækja sér innblástur og kynnast grósku íslenska hönnunarsamfélagsins.

Um HönnunarMars

Á HönnunarMars leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hátíðin er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.

HönnunarMars er boðberi bjartsýni og skapandi krafta í samfélaginu. Þar gefst tækifæri til að beina sjónum að hönnun sem drifkraft til nýsköpunar og sýna hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar gegna í samfélaginu.

HönnunarMars er ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur.

„Sjáumst á HönnunarMars!,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

Sjá má nánar um alla viðburðina á heimasíðu hönnunarmars

Auglýsing

læk

Instagram