Íslendingar vilja Apple AirPods í jólagjöf

Já.is hefur tekið saman þær vörur sem landsmenn hafa mest verið að skoða fyrir jólin í vöruleit Já.is. Listarnir eru tveir, annars vegar þær vörur sem hafa oftast verið skoðaðar í vöruleitinni og hins vegar þær vörur sem hafa oftast verið settar í óskalista en allt vöruúrval íslenskra vefverslana er nú aðgengilegt á nýjum Já.is og á einum stað er nú hægt að leita í vöruúrvali tæplega 400 íslenskra vefverslana, sem er bylting fyrir íslenska neytendur.

Þegar listarnir eru bornir saman má sjá að margt er ólíkt með þeim. Snyrtivörur eru til að mynda áberandi á óskalistum landsmanna og eru Estée Lauder rakadropar sem vinna gegn ótímabærri öldrun í öðru sæti yfir þær vörur sem oftast eru settar í óskalista. Það þarf þó mögulega hugrekki til að láta þá rata í jólapakkann. Hins vegar tróna Apple AirPods heyrnartólin á toppnum á báðum listum og því allar líkur á að þau muni lenda í mörgum jólapökkum í ár og hitta beint í mark.

500.000 vörur frá íslenskum vefverslunum eru nú aðgengilegar í leit á nýjum og endurbættum Já.is en nýr vefur var settur í loftið fyrir stuttu með það að markmiði að auðvelda Íslendingum að gera bestu kaupin. Í vöruleitinni geta notendur Já.is fundið og borið saman vörur og verð frá mismunandi söluaðilum, búið til óskalista og fengið sendar tilkynningar þegar vörur eru á tilboði eða þegar verð breytist. Óskalistunum er hægt að deila með vinum og vandamönnum, sem mun án efa létta mörgum lífið á síðustu metrunum fyrir jól.


Mest skoðuðu vörurnar

  1. Apple AirPods

  2. Bose QC35 II heyrnartól

  3. 66° Norður Jökla úlpa

  4. Daniel Wellington úr

  5. Bose SoundSport Free heyrnartól

  6. Reflections Ophelia kertastjaki

  7. Cintamani Unnur úlpa

  8. Nike Tech Fleece hettupeysa

  9. Nike Tech Fleece buxur

  10. Royal Copenhagen Mæðraplattinn 2018

Heitustu óskirnar

  1. Apple AirPods

  2. Estée Lauder Advanced Night Repair rakadropar sem vinna gegn öldrun

  3. Apple Watch Series 4 úr

  4. Glamglow Supermud Clearing maski

  5. 66° Norður Jökla úlpa

  6. Bose SoundSport Free heyrnartól

  7. Lúxuspakki frá Eco By Sonya

  8. Nike Power buxur

  9. Urð Stormur ilmkerti

  10. Marc Inbane brúnkusprey

Auglýsing

læk

Instagram