today-is-a-good-day

Íslenska kvennalandsliðið í fötum frá Polo Ralph Lauren við sérstök tilefni á EM

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í fötum frá Polo Ralph Lauren á EM í fótbolta sem hefst í næsta mánuði. Þær verða að sjálfsögðu í landsliðstreyjum í leikjunum sjálfum og öðrum íþróttafötum við æfingar en fötin, sem búðin Mathilda í Kringlunni, útvegaði verða notuð við sérstök tilefni.

Í fyrra klæddist karlalandsliðið jakkafötum á leiðinni á mótið og þegar þeir komu á vellina þar sem þeir spiluðu og má ætla að fyrirkomulagið verði svipað hjá konunum.

Evrópumótið hefst 16. júlí en íslenska liðið spilar sinn fyrsta leik 18. júlí og mætir þá Frakklandi. Ísland mætir Sviss 22. júlí og Austurríki 26. júlí. Lokahópur Íslands fyrir Em verður valinn á fimmtudaginn, líkt og kemur fram á RÚV. 

Auglýsing

læk

Instagram