Íslenskir aðdáendur klöppuðu Justin Bieber upp með víkingaklappinu

Íslenskir aðdáendur kanadísku poppstjörnunnar Justin Bieber klöppuðu hann upp með víkingaklappinu alræmda í lok tónleikanna í Kórnum í Kópavogi í gærkvöldi.

Justin lét ekki segja sér tvisvar að stíga aftur á svið, sneri aftur og flutti ofursmellinn Sorry.

Sumir gestir virtust ánægðir með uppátækið

En aðrir ekki

Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli í einkaþotu á miðvikudag. Tugir aðdáenda tóku á móti honum þegar hann lenti og sannkallað Bieber-æði hefur ríkt á Íslandi síðustu daga. Hann kemur aftur fram í Kórnum í kvöld.

Bieber hefur haft ýmislegt fyrir stafni á Íslandi. Vísir greindi frá því að hann hafi skellt sér í Bláa lónið skömmu eftir að hann lenti í gær. Þá hefur Nútíminn heimildir fyrir því að hann hafi farið í þyrlu að skoða Gullfoss.

Þá tók hann Skautahöllina í Laugardal á leigu í gærkvöldi frá klukkan 20.30. Þetta kemur fram á vef DV. Þar kemur fram að Bieber hafi ætlað að spila hokkí í skautahöllinni. Hann mætti hins vegar aldrei.

Sjá einnig: Stemningin á Reykjavíkurflugvelli þegar æstir aðdáendur biðu eftir Justin Bieber

DV greinir frá því að foreldrar barna og unglinga, sem áttu að vera á æfingum í skautahöllinni í gærkvöldi, hafi fengið póst um að æfingar myndu falla niður af óviðráðanlegum ástæðum í gærkvöldi.

Þá kemur fram að mikill viðbúnaður hafi verið á svæðinu og að lögreglan hafi á tímabili lokað götunum sem liggja að skautahöllinni.

Auglýsing

læk

Instagram