Íslenskur karlmaður í haldi í Svíþjóð: Talinn hafa svikið 192 milljónir íslenskra króna út úr fjárfestum

Íslenskur karlmaður var á föstudag framseldur sænskum yfirvöldum. Maðurinn var handtekinn í frönsku borginni Brest fyrr í haust grunaður um alvarleg fjársvik en hann er talinn hafa svikið 14 milljónir sænskra króna út úr fjárfestum eða 192 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram á Vísi í dag.

Maðurinn er á sextugsaldri en brotin áttu sér stað á árunum 2007 og 2008 og eru því 54 af 56 brotum sem hann er grunaður um fyrnd. Hann hefur verið eftirlýstur í Svíþjóð frá árinu 2017. Talið er að um 30 manns hafi fjárfest í fyrirtæki mannsins sem átti að stunda gjaldeyraviðskipti.

Grunur vaknaði um að svik hans árið 2009 þegar einn fjárfestanna reyndi að fá peninginn sinn til baka en fékk ekkert. Mats Sällstrom, yfirmaður rannsóknardeildar sem sér um skipulagða og alþjóðlega glæpastarfsemi hjá lögreglunni í Svíþjóð, segir í samtali við Gautarborgarpóstinn að fyrsta kæran á hendur manninum hafi borist árið 2010 en þá hafi verið búið að uppfæra vefsíðu fyrirtækisins þannig að ekki væri lengur hægt að ná í fulltrúa fyrirtækisins í síma.

Breska lögreglan fór fyrst fyrir rannsókn málsins en sænska lögreglan hefur stýrt henni frá árinu 2015. Maðurinn hefur verið eftirlýstur frá því í lok júli árið 2017 en þá ver gefin út evrópsk handtökuskipun á hendur honum. Hann var svo handtekinn 10. október síðastliðinn af lögreglunni í Frakklandi.

Maðurinn neitar sök í málinu og segist ekki hafa vitað af handtökuskipuninni.

Auglýsing

læk

Instagram