today-is-a-good-day

Jóhannes Haukur með Ian McKellen og Helen Mirren í nýrri stiklu: „Læt gamla manninn heyra það“

Íslenski leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur í kvikmyndinni The Good Liar sem er væntanleg. Fyrsta stikla myndarinnar var sýnd í gær en þar má sjá Jóhannes í hópi þekktra leikara.

Stórleikararnir Ian McKellen og Helen Mirren fara með aðalhlutverk kvikmyndarinnar sem fjallar um svikahrapp sem kynnist konu á netinu.

Ian McKellen og Jóhannes Haukur deildu stiklunni báðir á Twitter í gær. „Sjáðu mig og Helen Mirren í fyrstu stiklunni fyrir Good Liar,“ skrifar Ian McKellen.

Jóhannes deilir tísti Ian Mckellen og skrifar: „Jú jú þau eru þarna. En ég læt gamla manninn heyra það í treilernum. Með rússneskum hreim að sjálfsögðu.“

Sjáðu stikluna

Auglýsing

læk

Instagram