Jón Gnarr gagnrýnir umfjöllun fjölmiðla í kringum Banksy málið: „Aðallega dylgjur um að ég sé bjáni, þjófur og lygari“

Jón Gnarr lýsir sambandi sínu við íslenska fjölmiðla í gegnum tíðina í nýjum pistli á Facebook síðu sinni. Hann segist lengst af hafa haft ágætt samband við fjölmiðla en eftir að Jón tók við starfi borgarstjóra Reykjavíkur hafi hann farið að skynja óvild í sinn garð frá fjölmiðlum.

Hann segir að þá hafi hlutverk fjölmiðla ekki verið lengur að kynna verk hans eða bjóða upp á safarík helgarviðtöl heldur að veita honum aðhald og vaka yfir hverri hreyfingu hans, eins og hverjum öðrum stjórnmálamanni.

„Og það var þá sem ég byrjaði í fyrsta sinn að skynja óvild, í minn garð, frá heilum fjölmiðli. Það var mitt gamla blað Morgunblaðið sem fór hamförum í andúð sinni á mér og daglega birtust greinar sem voru persónulegar árásir á mig og fór sjálfur ritstjórinn þar fremstur í flokki. Ég þarf varla að útskýra það fyrir neinum,“ skrifar hann.

Sjá einnig: Jón Gnarr birtir myndir af sér sem Georg Bjarnfreðarson

Hann segir að slíkar aðdróttanir hafi að mestu hætt eftir að hann hvarf úr pólitík. Hann hafi þó farið að skynja mikla óvild aftur í sinn garð eftir útgáfu bókarinnar Útlaginn haustið 2015, í þetta skipti frá Stundinni. Hann segir að honum hafi fundist dagleg umfjöllun á miðlinum um bókina óvægin, ósanngjörn og lituð af andúð.

„Mér fannst það markmið fjölmiðilsins að reyna að koma á mig höggi með öllum ráðum og því gert skóna að ég væri lygari. Ég veit ekki afhverju það var.Kannski útaf pólitískum afskiptum mínum, kannski vegna efnistaka í bókinni og kannski vegna vinnu minnar hjá 365 og kannski var það smá útaf þessu öllu,“ skrifar hann og bætir við að það hafi verið ritstjórnarleg stefna miðilsins að taka á honum, samfellt og skipulega, og meiða með dylgjum.

Þetta kom mjög illa við mig og mér sárnaði þetta mikið. Mér fannst einhvern veginn sárara að vera sleginn úr þessari áttinni en hinni sem ég átti meira von á.

Því næst snýr hann sér að umfjöllun fjölmiðla um listaverk sem hann fékk í gjöf frá götulistamanninum Banksy á meðan hann var borgarstjóri Reykjavíkur.

Hann gagnrýnir fréttaflutning stærstu fjölmiðla landsins af málinu og segir Fréttablaðið, Vísi og Morgunblaðið hafa tekið höndum saman og „fabrikerað“ fréttir vegna málsins.

„Og sem fyrr er enginn málefnalegur fótur fyrir ásökunum heldur eru þær aðallega dylgjur um að ég sé bjáni, þjófur og lygari. Sem ég er ekki.“

Hann segir að markmið fjölmiðlanna hafi augljóslega ekki verið að varpa ljósi á eða skýra neitt heldur flækja um umvefja myrkri. Hann segist skilja að hann sé ekki allra en það sé ekki gott að fjölmiðlar geti beitt sér gegn saklausum einstaklingum.

„Ég get verið afgerandi persóna, ég hef komið víða við í lífinu og gert hluti sem hafa haft áhrif á annað fólk og þeirra líf. Ég snéri stjórnmálum á Íslandi næstum á hvolf og sumir eru ennþá að jafna sig á því. Ég hef sýnt að ég get bæði fætt og drepið stjórnmálahreyfingar. Þótt ég vilji trúa að þær æfingar mínar hafi verið að mestu til góðs þá er ekki víst að allir séu sammála því. Ég skil það. En ég skil ekki þörfina fyrir að gera mér upp eitthvað sem ég er ekki.“

Auglýsing

læk

Instagram