today-is-a-good-day

Júlíana og Vala fóru í sprenghlægilega myndatöku: „Þú ert bara belja, þú brosir ekkert“

Við höldum áfram að hita upp fyrir sjónvarpsþættina Venjulegt fólk sem koma í Sjónvarp Símans á föstudaginn. Í atriðinu hér að neðan má sjá þegar þær Júlíana og Vala fara í sprenghlægilega myndatöku.

Sjá einnig: Hilmar og Dóri DNA ræða ástarlífið í nýju atriði úr Venjulegu Fólki: „Við rífumst og svo rúnka ég mér“

Af einhverjum ástæðum er Vala klædd í beljubúning og myndatökumaðurinn virðist ekki hafa mikinn áhuga á henni. Júlíana fær þó heldur betur að láta ljós sitt skína.

Vala Kristín og Júlíana Sara fara með aðalhlutverk í þáttunum en þær léku áður í þáttunum Þær Tvær. Þær skrifa einnig þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum sem leikstýrir þáttunum. Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst leika einnig á þáttunum sem fjalla um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna.

Auglýsing

læk

Instagram