Kanye West segist vera kennari í listaháskólanum í Chicago, skólinn segir það ekki rétt

Rapparinn Kanye West er ekki að fara að taka að sér kennslu í listaháskólanum í Chicago. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Kanye lýsti yfir á Twitter í vikunni að hann væri að fara að taka að sér kennslu í listaháskólanum í Chicago. Tístið var hluti af röð tísta þar sem Chicago var honum ofarlega í huga.

Í tilkynningunni frá skólanum kom fram að stjórnendur skólans væru upp með sér að „hr. West hefði áhuga á að kenna í skólanum“ en jafnframt að hann væri ekki kennari við skólann og að það stæði ekki til.

Kanye lýsti einnig yfir á dögunum að Kim Kardashian, eiginkona hans, væri í laganámi. Það er ekki heldur rétt, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs.

Auglýsing

læk

Instagram