Kanye West tók upp nýtt lag á Íslandi

Rapparinn Kanye West tók upp lag á Íslandi í apríl en hann kom til landsins ásamt Kim Kardashian, eiginkonu sinni og föruneyti. Þetta kom fram í nýjasta þætti Keeping Up With The Kardashians sem var sýndur í Bandaríkjunum á sunnudagskvöld.

Kim sagði Kourtney, systur sinni, frá tilurð lagsins í lok þáttarins. Sjáðu stutt brot úr þættinum hér fyrir ofan. Systurnar voru staddar á Keflavíkurflugvelli þegar Kourtney spurði Kim hvað hafi orðið um hana og Kanye kvöldið áður.

„Við fórum í hljóðver. Hann þurfti að taka upp lag og vildi hafa mig á staðnum,“ svarar Kim.

Nútíminn hefur ekki vitneskju um hvort Kanye hafi farið í hljóðver í Reykjavík eða hvort hann hafi hreinilega verið með upptökubúnað með sér í ferðalaginu. Það er alls ekki ólíklegt þar sem auðvelt er að ferðast með upptökubúnað og Kanye West kann að snúa tökkunum, enda upptökustjóri til margra ára.

Forvitnilegt verður að heyra lagið. Og auðvitað sjá myndbandið sem Kanye tók upp hér á landi.

Auglýsing

læk

Instagram