Katrín Jakobsdóttir býður sig ekki fram til forseta Íslands

Katrín Jakobsdóttir hyggst ekki bjóða sig fram til forseta Íslands í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Katrínar.

„Fjölmargir hafa haft samband að undanförnu og hvatt mig til að bjóða mig fram sem forseta Íslands,“ segir Katrín í tilkynningunni.

Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekkert, fólk hvaðanæva af landinu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kannanir þar sem einhverjir virtust telja mig heppilega í þetta embætti.

Katrín segist hafa hugleitt málið alvarlega í nokkra daga. „Ég hef líka tekið eftir gagnrýni frá einstaka mönnum sem eru duglegir að tjá sig, virðast óttast framboð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almennilega við þá hugmynd að konur taki eigin ákvarðanir,“ segir hún.

„Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjölbreyttum hópi fólks sem ég ber virðingu fyrir og vil þakka hvatninguna.“

Hún segist hafa ákveðið að bjóða sig ekki fram að þessu sinni. „Ég vona að kosningabarátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mannréttindum og lýðræðisumbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.“

Auglýsing

læk

Instagram