Katrín Tanja vann heimsleikana í CrossFit, fékk 35 milljónir króna í verðlaunafé

Katrín Tanja Davíðsdóttir vann rétt í þessu heimsleikana í CrossFit annað árið í röð. Hún fékk því nafnbótina hraustasta kona heims.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir lenti í þriðja sæti, Anní Mist Þórisdóttir í því þrettánda og Þuríður Erla Helgadóttir í átjánda sæti.

Katrín fékk í fyrstu verðlaun 275 þúsund dali eða tæpar 34 milljónir króna. Þá fékk hún 13 þúsund dali aukalega fyrir að ná fyrsta sæti í þremur þrautum og öðru sæti í tveimur. Heildar vinningsfé hennar er því rúmlega 35 milljónir króna.

Katrín fékk einnig Glock-skammbyssu í fyrstu verðlaun. Forsvarsmenn heimsleikanna hafa verið gagnrýndir fyrir þá ráðstöfun en sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fá skammbyssu í verðlaun ásamt peningum.

Auglýsing

læk

Instagram