today-is-a-good-day

Kim Kardashian lekur myndbandi sem sýnir Taylor Swift samþykkja umdeilda línu úr lagi Kanye

Kim Kardashian birti á Snapchat í nótt myndband sem sýnir rapparann Kanye West, eiginmann hennar, ræða við tónlistarkonuna Taylor Swift um umdeildan texta í laginu Famous af plötunni The Life of Pablo. Myndbandið var tekið upp þegar vinna að plötunni stóð yfir.

Í myndbandinu sést Kanye West bera eftirfarandi línu undir Swift: „I feel like me and Taylor might still have sex“ en svo virðist sem hann sleppi seinni hlutanum: „I made that bitch famous“. Hún tekur vel í símtalið og þakkar honum kærlega fyrir að láta sig vita.

Swift brást hins vegar harkalega við opinberlega þegar platan kom út í febrúar. Talsmaður hennar sagði í yfirlýsingu að Kanye hefði aldrei haft samband við hana til að samþykkja textann ásamt því að gagnrýna hann fyrir að gefa út lag með svo kvenfjandsamlegum texta.

Þá þótti augljóst að Taylor væri að beina orðum sínum til Kanye í ræðu sinni á Grammy-verðlaununum:

Ég vil bara segja við allar ungu konurnar þarna úti að fólk mun gera lítið úr árangri ykkar eða reyna að taka ábyrgð á afrekum ykkar eða frægð.

Kanye brást við með því að birta þetta tíst, þar sem hann fullyrti að Taylor hefði veitt honum blessun sína:

https://twitter.com/kanyewest/status/698146344242958336?ref_src=twsrc%5Etfw

Kim Kardashian sagði svo í viðtali í tímaritinu GQ á dögunum að það væri til myndband sem sýndi Kanye ræða texta lagsins við Taylor Swift. Ekki nóg með það, þungavigtarfólk úr tónlistarbransanum hefði orðið vitni að símtalinu.

Hún birti svo hluta úr myndbandinu á Snapchat í nótt en snöppin hennar má sjá hér fyrir neðan. Þar sést augljóslega upptökustjórinn Rick Rubin varð vitni að símtalinu.

Í myndbandinu segist Taylor Swift kunna að meta að Kanye segi henni frá línunni, sem hún segir að sé augljós hæðni (e. tongue in cheek). Þá segir hún að það verði frábært að geta sagt fjölmiðlafólki frá þessu símtali, þegar hún verður spurð út í línurnar.

Taylor brást skjótt við myndbandinu og segir í yfirlýsingu að Kanye hafi aldrei spilað fyrir hana allt lagið og að það væri verið að mála hana upp sem lygara að ósekju.

https://www.instagram.com/p/BH_TCz4DeSj/

Hér má sjá snöppin frá Kim

https://www.youtube.com/watch?v=DDcZWa1tmQo

Auglýsing

læk

Instagram