Kim Kardashian og Kendall Jenner fá báðar kvíðaköst, önnur undir stýri og hin í flugvélum

Systurnar Kim Kardashian West, 36 ára, og Kendall Jenner, 21 árs, eru báðar með kvíða.

Kardashian fær oft kvíðaköst þegar hún ekur bíl og Jenner á erfitt með að ferðast ein með flugvél.

Þetta kom fram í raunveruleikaþættinum Keeping Up With the Kardashians í gær en People greinir frá. Þáttur á tökunum hófust á ný fyrir skömmu en hlé var gert á þeim eftir að Kardashian var rænd á hóteli í París í Frakklandi.

Í þættinum ræddu systurnar við sérfræðing sem gaf þeim ráð vegna kvíðans. Jenner var ekki mjög móttækileg fyrir ráðum hans en Kardashian fór aftur á móti með honum í bíltúr í von um að vinna bug á kvíðaköstunum.

„Ég hugsa stöðugt um þetta, þetta gerir mig brjálaða,“ sagði Kardashian um kvíðaköstin við sérfræðinginn. „Ég vil bara vinna á kvíðanum og lifa lífinu… Ég glímdi aldrei við kvíða og ég vil fá líf mitt aftur.“

Auglýsing

læk

Instagram