Kim Kardashian ógnað með byssu og rænd í lúxusíbúð í París

Tveir menn klæddir eins og lögregluþjónar ógnuðu Kim Kardashian með byssu og rændu af henni skartgripum að verðmæti hundruð milljóna í nótt. Þetta kemur fram á vef BBC og er staðfest af lögregluyfirvöldum og talsmanni hennar.

Ránið átti sér stað um klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Talsmaður Kardashian segir að hún sé ómeidd en í miklu uppnámi. Enginn meiddist í ráninu, samkvæmt lögreglu.

Í frétt BBC kemur fram að mennirnir hafi verið grímuklæddir og vopnaðir byssum. Rapparinn Kanye West, eiginmaður Kim Kardashian, var á sviði í New York þegar hann fékk fréttirnar. Hann stöðvaði tónleikana umsvifalaust.

„Fyrirgefið en ég þarf að stöðva tónleikana. Neyðartilvik í fjölskyldunni,“ sagði hann. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=PxZ6j2MzcQg

Kim dvaldi í lúxusíbúð í miðborg Parísar og hefur dvalið þar áður samkvæmt BBC.

Ránsfengurinn var að mestu leyti skartgripir og eru þeir metnir á milljónir evra, samkvæmt lögreglu. Óvíst er hvort börn Kim og Kayne, hin þriggja ára gamla North og hinn 10 mánaða gamli Saint, hafi verið á staðnum.

Kim er stödd á tískuvikunni í Paris ásamt systrum sínum og móður.

Auglýsing

læk

Instagram