Kim Kardashian tjáir sig loksins um stóra framhjáhaldsmálið í fjölskyldunni

Kim Kardashian tjáði sig loksins um stóra framhjáldsmálið sem ruggað hefur bát Kardashian fjölskyldunnar all verulega undanfarnar vikur. Ekkert hefur heyrst frá fjölskyldunni vegna málsins fyrr en nú en Kim var gestur í þættinum The Ellen Show í vikunni. 

Sjá einnig: Khloe Kardashian og Tristan Thompson eignast stúlku í skugga framhjáhalds

Eins og fölmiðlar um allan heim hafa greint frá var Tristan Thompson, leikmaður Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni og kærasti Khloe Kardashian, gómaður við framhjáhald aðeins nokkrum dögum áður en hún eignaðist þeirra fyrsta barn. Kim segist standa þétt við bakið á Khloe. „Hún er mjög sterk og er að gera sitt allra besta,“ segir Kim í viðtalinu sem sjá má í í heild hér. 

Framhjáhaldið varð opinbert þegar vefmiðillinn TMZ birti myndband úr öryggismyndavél frá því í október sem sýndi Tristan gera sér dælt við tvær konur á skemmtistað í Washington. Khloe var þá komin þrjá mánuði á leið. Myndbandið sýnir hann kela við konurnar og önnur grípur meðal annars í klof hans.

Fleiri myndbönd birtust í kjölfarið sem sýndu Tristan með öðrum konum. Ein þeirra birti myndband á Instagram sem virtist sýna hann kela við hana en hún tók það niður eftir skamma stund.

Aðdáendur Khloe hafa ekki sparað stóru orðin um Tristan á samfélagsmiðlum. Hann hefur fengið líflátshótanir ásamt því að vera kallaður hataðasti maður Bandaríkjanna um þessar mundir. 

Auglýsing

læk

Instagram