Kim Kardashian var undir áhrifum alsælu þegar hún tók upp kynlífsmyndband: „Gerist alltaf eitthvað slæmt“

Kim Kardashian greindi frá því í raunveruleikaþættinum Keeping Up With the Kardashians um helgina að hún hefði verið undir áhrifum alsælu þegar hún gifti sig í fyrsta skipti. Þetta var árið 2000 þegar Kim var 19 ára gömul. Þá giftist hún tónlistarmanninum Damon Thomas.

Sjá einnig: Samtal Kim Kardashian og Alec Baldwin um Caitlyn Jenner vekur reiði meðal áhorfenda

Kim sagði að þetta hefði ekki verið í eina skiptið sem hún hefði prófað alsælu en hún var einnig undir áhrifum alsælu þegar hún gerði frægt kynlífsmyndband.

Kim sagði að það hefði alltaf eitthvað slæmt gerst þegar hún tók inn alsælu. Hún er nú gift rapparanum Kanye West og eiga þau saman þrjú börn.

Árið 2011 giftist hún körfuboltakappanum Kris Humphries en þau skildu eftir einungis 72 daga hjónaband.

Auglýsing

læk

Instagram