Kvartað undan reiðhjólafólki í borginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á Facebook síðu sinni í dag að mikið hafi verið kvartað undan reiðhjólafólki á svæðinu í sumar. Margir hjólreiðamenn eru sagðir brjóta allar umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum enga tillitssemi.

Lögreglan segist ekki geta fullyrt um hversu margir hagi sér með þessum hætti en tilkynningarnar séu fjölmargar og berist daglega.

„Ábendingar eða kvartanir um reiðhjólafólk sem fer ógætilega hafa borist frá vegfarendum í öllum sveitarfélögum í umdæminu og segir það sína sögu. Þeir sem kvarta undan hjólreiðamönnum segja þá m.a. glannalega og hjóla í veg fyrir aðra vegfarendur, ýmist á akbrautum eða göngustígum,” segir í tilkynningu lögreglu.

Lögreglan biðlar til reiðhjólafólks, sem þetta á við um, að gera betur í umferðinni, þ.e. virða umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum bæði kurteisi og tillitssemi. Hjólreiðafólk eigi eins og aðrir að virða umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum bæði kurteisi og tillitssemi.

 Eru þessir sömu hjólreiðamenn sagðir tillitslausir með öllu að mati þeirra sem hafa kvartað, en þeim síðarnefndu hefur oft verið mikið niðri fyrir þegar þeir hafa hringt í lögregluna og bent á þá miklu slysahættu sem þessu fylgir. Lögreglan biðlar til reiðhjólafólks, sem þetta á við um, að gera betur í umferðinni, þ.e. virða umferðarreglur og sýna öðrum vegfarendum bæði kurteisi og tillitssemi.

Auglýsing

læk

Instagram