„Sonur minn er í öruggum höndum og er hjá vinum mínum í Orlando,“ segir Guðný Pétursdóttir, móðir hins ellefu ára gamla Péturs.
Um hádegisbilið í dag hófu lögregluyfirvöld vestanhafs leit að drengnum, sem hefur verið búsettur hjá ömmu sinni og afa á Orlando-svæðinu. Til hans hafði ekki spurst síðan um hádegisbilið í gær að staðartíma. Samkvæmt heimildum Nútímans er talið að Pétur hafi farið út um glugga á herbergi sínu og horfið þaðan sporlaust.
Flókið fjölskyldumál sem nær til Íslands
Nútíminn hefur rætt við fjölda aðila vegna málsins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fjölmiðillinn hefur undir höndum er um að ræða flókið fjölskyldumál sem teygir anga sína til Hafnarfjarðar, þar sem móðir drengsins býr.
Guðný flutti árið 1998 til Bandaríkjanna, aðeins tíu ára gömul. Báðir foreldrar hennar eru íslenskir að uppruna en hafa búið vestanhafs í áratugi. Fjölskyldan hefur lengi haft fasta búsetu á Orlando-svæðinu, skammt frá Ventura — svæði sem margir Íslendingar þekkja vel, enda bæði fjöldi landsmanna með eignir þar og sumir sem hafa flutt þangað búferlum.
Mynd birtist á DV – en Pétur ekki týndur
Í dag birti DV frétt um leitina að Pétri ásamt mynd af auglýsingu þar sem lýst er eftir honum. Margir tóku andköf og óttuðust að drengnum hefði verið rænt, jafnvel á meðan hann væri í skemmtigarði á borð við Disney eða Universal Studios.
Guðný vill leiðrétta það og tekur fram að sonur hennar sé ekki týndur:
„Hann er í öruggum höndum á meðan verið er að vinna úr máli hans, bæði vestanhafs og á Íslandi, nánar tiltekið í Hafnarfirði.“
Átök við barnavernd í Hafnarfirði
Guðný segir að hún hafi lent upp á kant við barnaverndarnefnd Hafnarfjarðarbæjar. Nefndin hafi, að hennar sögn, ekki sýnt skilning á stöðu hennar og sonarins.
„Þau neituðu okkur um túlk þar sem við vorum með íslensk nöfn og gátum myndað einfaldar setningar á íslensku,“ segir hún.
Málið hafi verið komið á borð dómstóla þegar Guðný fékk nóg af því sem hún kallar illa meðferð og ákvað að senda son sinn til Flórída, til móður sinnar og föður. Það var fyrir tveimur vikum.
„Hann treystir fáum“
„Pétur Steinn Sigurðsson, sonur minn, er mjög sjálfstæður og treystir ekki mörgum,“ segir Guðný.
„Þegar hann er í nýju umhverfi treystir hann ekki aðstæðum og tekur sjálfstæðar ákvarðanir. Hann var í sambandi við mig og ákvað sjálfur að stinga af. Á Íslandi var hann vanur frelsi sem börn þekkja þar. Hann ætlaði bara út að sparka í bolta með vinum sínum. Síðan hættu foreldrar mínir að svara bæði honum og mér. Ég sagði honum þá að hafa samband við ákveðna vini mína þarna úti sem hann treystir — og hann gerði það. Nú er hann hjá þeim. Ég hef beðið barnavernd í Hafnarfirði um að hafa samband við mig til að leysa málið, en þau segja það nú úr sínum höndum. Þau segjast ekki vita neitt.“
Engin samskipti frá yfirvöldum
Guðný segir að hvorki lögreglan í Orlando né CPS, barnaverndaryfirvöld vestanhafs, hafi haft samband við hana.
„Þau geta hringt í hann hvenær sem er, en hann treystir ekki hverjum sem er. Hann treystir ákveðnum starfsmönnum hjá Hafnarfjarðarbæ, en þau segjast ekki geta aðstoðað okkur – mig eða hann.“
„Málið er flókið – en hann er öruggur“
Eins og lesendur ættu að sjá er málið bæði flókið og persónulegt. Það sem skiptir mestu máli að sögn Guðnýjar er að sonur hennar sé öruggur.
„Ég ræddi við hann rétt áður en þið hringduð,“ segir hún. „Ég hef einnig haft samband við bandaríska sendiráðið, lögfræðing vestanhafs og hér heima, og vona að málið leysist áður en það verður að einhverju stærra og erfiðara viðfangs.“