Lögreglan varar við tölvuþjófum sem þykjast hringja frá Microsoft

Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem þeir vara við óprúttnum svindlurum sem íbúar á Akureyri og víðar hafa margir hverjir tilkynnt til lögreglunnar. Frá þessu er greint á vefnum Kaffið.is.

Símtöl eru að berast fólki erlendis frá þar sem viðkomandi kynnir sig sem starfsmann Microsoft og tjáir því að gera þurfi við öryggisgalla í Windows-stýrikerfinu. Þannig ætlast þeir til að fólk fari í tölvu sína og geri við ákveðna hluti samkvæmt fyrirmælum þeirra. Markmiðið þeirra er að ná stjórn á tölvunni í glæpsamlegum tilgangi en þess má geta að Microsoft-fyrirtækið notar aldrei þá aðferð að hringja í fólk til að tilkynna og/eða gera við öryggisgalla.

Lögreglan hvetur fólk til að leggja sem fyrst á fái það símtal af þessu tagi og hlýða engu af því sem lagt er fyrir það í símtalinu.

Auglýsing

læk

Instagram