Lýstu upp Heimaklett fyrir Kolbein sem var bráðkvaddur á aðfangadag

Vinir og vandamenn Kolbeins Arons Arnarsonar sem lést fyrir skemmstu lýstu upp Heimaklett með kertum til að heiðra minningu hans í gær. Kolbeinn sem var aðeins 29 ára þegar hann lést var bráðkvaddur á heimili sínu í Vestmannaeyjum á aðfangadag.

Kolbeinn lék um árabil handbolta með liði ÍBV og varð meðal annars Íslands og bikarmeistari með liðinu á síðasta ári.

Fallegt

Auglýsing

læk

Instagram