today-is-a-good-day

Má vera að farið verði í uppsagnir hjá WOW: „Ég er aldrei vonsvikinn“

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, segir að möguleiki sé á því að það komi til uppsagna hjá félaginu.Ekkert verður að kaupum Icelandair Group á WOW air. Skúli segir að viðræður við nýjan mögulegan kaupanda gangi vel og það megi búast við niðurstöðu fljótlega. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Skúli ræddi við blaðamenn þegar hann gekk af starfsmannafundi í morgun. Hann vildi ekki svara því við hvern félagið ætti í viðræðum. Hann sagðist þó bjartsýnn á framhaldið og aðspurður hvort hann væri vonsvikinn með að kaup Icelandair hafi ekki gengið upp sagðist hann aldrei vera vonsvikinn.

Þegar hann var spurður út í hvort búast megi við uppsögnum hjá félaginu sagði Skúli: „Það má vera.“ Hann sagði að allir starfsmenn myndu þó að sjálfsögðu fá greitt næstu mánaðarmót.

Auglýsing

læk

Instagram