Myrti konu sína og svipti sig lífi á Akranesi

Tvennt fannst látið í íbúð á Akranesi í hádeginu í dag. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að karlmaður á sjötugsaldri hafi myrt konu sína með skotvopni í fjölbýlishúsi á Akranesi í nótt og svipt sig síðan lífi. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.

RÚV greinir frá því að konan hafi verið á sextugsaldri og að lögreglumenn hafi brotið sér leið inn í íbúðina og fundið fólkið látið.

Auglýsing

læk

Instagram