Orkudrykkjaneysla hefur alvarleg áhrif á svefn ungmenna: „Þetta er alveg orðið partur af menningunni“

Maciej Stanislav Kudla í 10.bekk Norðlingaskóla segist stundum leita í orkudrykki ef hann er þreyttur og Tinna Grönfeldt á 1. ári í menntaskóla segir orkudrykki fara illa í sig og valda kvíða en hún drekki þá samt af og til. Koffín drykkja unglinga er til umfjöllunar í þáttunum Lifum lengur í Sjónvarpi Símans.

Svefnleysi ungmenna er mikið áhyggjuefni og er talið að 40 prósent 10.bekkinga fái ekki fullan svefn samkvæmt úttekt sem gerð var. Orkudrykkjaneysla er orðin of mikil meðal ungmenna í grunn-og framhaldsskólum og hefur alvarleg áhrif á svefn þeirra þar sem þeir innihalda mikið koffín.

Vinsælasti orkudrykkur meðal ungmenna inniheldur 105 mg af koffíni, ef ungmenni drekka 4 slíka á dag þá eru þau að innbyrgða koffín sem jafngildir rúmlega fjórum kaffibollum. Það er meira en ráðlagður dagsskammtur fyrir fullorðna. Erla Björnsdóttir svefnsérfræðingur segir þetta alvarlega þróun.

Auglýsing

læk

Instagram