Örvæntingarfullir aðdáendur Írafárs gripu í tómt þegar það virtist uppselt á tónleikana í Hörpu á tíu mínútum

Aðdáendur hljómsveitarinnar Írafár grétu margir í hádeginu í dag þegar það virtist hafa verið uppselt á endurkomutónleika hljómsveitarinnar í Hörpu á næsta ári. Margir lýstu yfir vonbrigðum sínum á Twitter og samkvæmt sögunni var uppselt á aðeins tíu mínútum en það eru þó enn til miðar þegar þetta er skrifað.

Sjá einnig: 19 ára gamall Jón Jónsson fór á kostum í myndbandi Írafárs fyrir mörgum, mörgum árum

Birgitta Haukdal og félagar í Írafári eru að snúa aftur og verða með tónleika í Hörpu í næsta sumar. Írafár var vinsælasta hljómsveit landsins um árabil og sendi frá sér þrjár breiðskífur á árunum 2002 til 2005.

Tilkynnt var á Rás 2 að uppselt væri á tónleikana. Nútíminn kannaði málið og hafði samband við Tix.is og þar fengust þau svör að gríðarlegur áhugi hafi verið á tónleikunum þegar miðasala hófst í hádeginu. Eftir um tíu mínútur virtust sem allir miðar væru seldir og hófst þá sala á aukatónleika. Svo virðist sem einhverjir þeirra sem náðu að taka frá miða á fyrri tónleikana á vefnum hafi hætt við sem olli því að margir gripu í tómt.

Vonbrigðin á Twitter voru raunveruleg

Aðrir fögnuðu því að hafa náð miða

Auglýsing

læk

Instagram