Páll Magnússon studdi ekki ráðherraskipan Sjálfstæðisflokksins: „Lítilsvirðing gagnvart Suðurkjördæmi“

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, studdi ekki ráðherraskipan flokksins á þingflokksfundi í gærkvöldi. Hann greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

Sjá einnig: Svona lítur ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar út 

Hann segir ráðherraskipan flokksins í nýskipaðri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar fela í sér lítilsvirðingu gagnvart Suðurkjördæmi.

Þá segir hann skipanina ganga í veigamiklum atriðum gegn því lýðræðislega umboði sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins áunnu sér í prófkjörum og síðan kosningum í haust.

Hér má sjá ráðherra Sjálfstæðisflokksins:

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með ferðamál, iðnað og nýsköpun í atvinnuvegaráðuneytinu,
Jón Gunnarsson fer með samgöngu-, fjarskipta- og byggðamál í innanríkisráðuneytinu
Sigríður Andersen fer með dómsmál í innanríkisráðuneytinu
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra

Hér má sjá færsluna í heild sinni:

Vegna fjölda fyrirspurna og athugasemda sem hafa dunið á mér síðasta hálfa sólarhringinn finnst mér skylda mín að upplýsa stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi um eftirfarandi:

Á þingflokksfundi í gærkvöldi sagðist ég því miður ekki geta stutt þá ráðherraskipan sem formaður flokksins gerði tillögu um.

Fyrir því væru tvær ástæður: Í fyrsta lagi gengi þessi skipan í veigamiklum atriðum gegn því lýðræðislega umboði sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu áunnið sér í prófkjörum og síðan kosningum í haust.

Í öðru lagi fæli hún í sér lítilsvirðingu gagnvart Suðurkjördæmi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sinn stærsta sigur í kosningunum.

Því má bæta við að þetta hefur auðvitað ekkert með þá einstaklinga að gera sem völdust til ráðherraembætta. Þau eru öll hið vænsta fólk og ég óskaði þeim hjartanlega til hamingju.

Auglýsing

læk

Instagram