Páll Óskar mætti á Gleðigönguna í risa hælaskó

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson tók þátt í Gleðigöngunni í Reykjavík í dag og mætti á stórglæsilegum vagni. Vagn Palla í ár var risastór hælaskór þar sem hann söng og dansaði ásamt fríðu föruneyti.

Fjöl­menni hef­ur safn­ast í miðborg Reykja­vík­ur og er gleðin við völd. Gang­an lagði af stað frá Sæ­braut við Hörpu klukk­an tvö og er för­inni heitið í Hljóm­skálag­arð þar sem verður útihátíð.

Páll er þekktur fyrir að búa til glæsilega vagna fyrir gönguna sem er haldin í nítjánda skipti í dag. Hann hefur áður mætt á risa svan, risa einhyrning, bleiku víkingaskipi og risa kjól.

Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga sem hófust á þriðjudag og enda á morgun, sunnudag.

Hér má sjá myndband frá því þegar Palli mætti á vagni sem var risa svanur árið 2014

Auglýsing

læk

Instagram