Ragnhildur Steinunn og Viktoría sýna á bakvið tjöldin hjá samfélagsmiðlastjörnum Íslands

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir vinna nú að nýjum þáttum um samfélagsmiðlastjörnur landsins. Skot framleiðir þættina sem verða sýndir á RÚV.

Sólrún Diego, Guðrún Veiga og Aron Mola eru á meðal þeirra sem tekin verða fyrir í þáttunum. Þúsundir fylgjast með lífi þeirra og störfum á Snapchat og Instagram.

Ragnhildur Steinunn segir í samtali við Nútímann að tökur á þáttunum séu að hefjast. „Við skyggnumst meðal annars inn í líf Sólrúnar Diego,“ segir hún.

Hún hefur byggt sér upp feril á þessum nýja miðli. Tugir þúsunda fylgjast með henni daglega. Þetta er ótrúlega spennandi heimur.

Þættirnir verða sex talsins.

Auglýsing

læk

Instagram