Reistu risastyttu af Ed Sheeran í Moskvu

Risastór stytta af söngvaranum vinsæla, Ed Sheera, hefur verið reist í Moskvu í Rússlandi. Styttan birtist í Gorky Park í Moskvu en söngvarinn heldur tónleika í rússnesku höfuðborginni næsta föstudag.

Sjá einnig: Risastytta af „Sexy Jeff Goldblum“ slær í gegn

Styttan, sem er um fimm metrar, er frekar nákvæm eftirlíking af söngvaranum vinsæla, þar sem rauða hárið fær að njóta sín og húðflúrin hans eru sýnd í allri sinni dýrð.

Ed Sheeran er væntanlegur til Íslands og spilar á Laugardalsvellinum 10. og 11. ágúst næstkomandi. Það verður gaman að sjá hvort tónleikahaldarar hér heima taki á móti söngvaranum með risastyttu.

Sjá einnig: Glowie hitar upp fyrir Ed Sheeran

Auglýsing

læk

Instagram