Senegalskir áhorfendur tóku til eftir leik liðsins á HM

Senegalskir áhorfendur, sem voru á leik Senegal og Póllands á HM í gær, fóru ekki tómhentir af leikvangnum eftir leik heldur tóku með sér rusl og þrifu eftir sig. Football Tweets á Twitter birti myndband af þessu skemmtilega atviki í gær.

Vanalega eru það vallastarfsmenn sem þurfa að týna upp ruslið eftir æsta áhorfendur en á myndbandinu sjást stuðningsmenn Senegal taka til eftir sig og skilja eftir í hrúgu sem til að auðvelda starfsmönnum að taka til.

Skemmtilegt atvik sem áhorfendur fleiri liða ættu að taka sér til fyrirmyndar

Auglýsing

læk

Instagram