Sigmundur Davíð leiðir lista Framsóknar, Höskuldur verður ekki á lista

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mun leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningunum í lok október. Hann hlaut afgerandi kosningu á tvöföldu kjördæmisþingi flokksins sem nú stendur yfir. mbl.is greinir frá. 

Sjá einnig: Örskýring: Ha? Af hverju er helgin svona mikilvæg fyrir Sigmund Davíð?

Sigmundur hlaut 170 atkvæði í efsta sæti listans, en alls greiddu 238 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru þrír.

Í öðru sæti er Þórunn Egilsdóttir.

Hösk­uld­ur Þór­halls­son, sem sóttist eftir efsta sæti listans líkt og Sigmundur, hlaut 10,21% greiddra at­kvæða. Hann ætlar ekki að sækjast eftir sæti á lista flokksins. Það mun Líneik Anna Sæmundsdóttir heldur ekki gera. Hún sóttist einnig eftir efsta sætinu en hlaut aðeins tvö atkvæði í kosningunni.

Þá dró Hjálm­ar Bogi Hafliðason fram­boð sitt í annað sæti til baka og er Þór­unn Eg­ils­dótt­ir því sjálf­kjör­in i annað sæti list­ans.

Þau Hjálm­ar Bogi, Lín­eik Anna og Sig­fús Karls­son eru því í kjöri um 3. sæti list­ans og hefst kosn­ing um sætið inn­an skamms.

Auglýsing

læk

Instagram