Sigmundur Davíð losaði sig við 20 kíló á 15 vikum: „Við gerðum plan og fylgdum því eftir“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, losaði sig við 20 kíló á 15 vikum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Sigmundar.

Sigmundur skrifar árangurinn á Baldur Borgþórsson einkaþjálfara sem skipar annað sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík. „Baldur annar í Reykjavík hélt því fram að hann gæti losað mig við 15 kíló á 20 vikum. Við gerðum plan og fylgdum því eftir. Afraksturinn: 20 kíló á 15 vikum,“ segir Sigmundur.

Sigmundur setur þetta svo í samhengi við stefnu Miðflokksins, enda kosningar framundan í næstu viku.

Auglýsing

læk

Instagram