Söngkonan Rita Ora frelsar geirvörtuna á forsíðu Lui

Söngkonan Rita Ora frelsar geirvörtuna á forsíðu franska tímaritsins Lui, sem er væntanlegt í verslanir. Forsíðuna má sjá hér fyrir neðan.

Ora er ein vinsælasta söngk0na Bretlands um þessar mundir. Þá er hún dómari í breska X-Factor og hefur einnig setið í dómarasætinu í The Voice.

Rita Ora hefur látið sig líkamsímynd varða og í viðtali í Hollywood Reporter í fyrra svaraði hún gagnrýni um ögrandi klæðaburð sinn á tónleikum. „Nýja lagið mitt heitir Body on Me og fjallar um líkamann og að láta sér líða vel í eigin skinni,“ sagði hún.

Þannig að ég hugsaði með mér; ég klæði mig eins heima hjá mér með vinum mínum. Af hverju ekki að gera það líka á tónleikum?

Hún sagði þetta snúast um að láta sér líða vel.

„Miley er í fararbroddi þeirra sem styðja það að láta sér líða vel í eigin skinni. Þetta hófst allt með Madonnu. Svona listamenn stíga mjög sjaldan fram.“

Tímaritið Lui birti forsíðuna á Twitter í gær.

Auglýsing

læk

Instagram