Starfsfólki hótað eftir umdeilda færslu um tvo týnda hunda: „Hótanir verða tilkynntar til lögreglu“

Færsla sem birtist á Facebook-síðu sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshreppur í gær vakti mikla athygli. Þar var auglýst eftir eigendum tveggja hunda, ef eigendurnir myndu ekki finnast var greint frá því að hundarnir yrðu aflífaðir. Færslan vakti hörð viðbrögð og var fjarlægð af Facebook. Í nýrri færslu segir að starfsfólki sveitarfélagsins hafi verið hótað.

Sjá einnig: Sveitarfélag á suðurlandi hótar að drepa hunda í haldi

Sveitarfélagið setti á upprunalegu færsluna á Facebook og lýst var eftir eigendum hundanna tveggja. Sveitarstjórnin gaf eigendum hundanna frest til 15. júlí til að vitja dýranna, að öðrum kosti yrðu hundarnir aflífaðir. Í nýju færslunni áréttaði sveitarstjóri að lausaganga hunda væri bönnuð í sveitarfélaginu og að yfirvöldum beri að auglýsa handsömun á hundum, líkt og var gert.

„Var því ekkert athugavert við það þar sem verið var að framfylgja áðurnefndri samþykkt. Færslan vakti talsverða athygli og fékk mikla umfjöllun. Hún varð til þess að eigendur hafa fundist og samkvæmt okkar upplýsingum verður þeirra vitjað fyrir þann tíma sem gefinn var upp,“ segir í færslunni.

Þar segir einnig að upprunalega færslan hafi verið fjarlægð vegna hótana í garð starfsfólks og annarra. Þær hótanir verði tilkynntar til lögreglu.

„Það má vissulega deila um orðalag bæði í færslunni og í tilgreindum samþykktum um hundahald og verður hvort tveggja skoðað í kjölfar þessa máls. Við þökkum allar þær ábendingar sem við fengum um orðalag og önnur úrræði sem beita má þegar upp koma svipuð mál.“

Auglýsing

læk

Instagram