Stefna á að birta upplýsingar um greiðslur til þingmanna á vef Alþingis

Aukin upplýsingagjöf um kjör og greiðslur Alþingismanna er til skoðunar. Til stendur að aðgangur að upplýsingunum verður auðveldur og þær birtar á vef Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis.

Sjá einnig: Fjórar ástæður fyrir því að aksturspeningamálið er raunverulegur skandall

Greiðslur til þingmanna hafa verið í umræðunni eftir að það kom í ljós að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk um 385 þúsund krónur á mánuði endurgreiddar í aksturskostnað.

Steingrímur segir í tilkynningu að Alþingismönnum hafi síðustu daga borist margvíslegar fyrirspurnir um greiðslur tengdar starfi þeirra á Alþingi.

„Af því tilefni vill forseti Alþingis koma því á framfæri að til skoðunar hefur verið á undanförnum mánuðum, og rætt m.a. í forsætisnefnd Alþingis, að auka upplýsingagjöf um kjör og starfskostnaðargreiðslur alþingismanna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auðveldur og þær birtar á vef þingsins,“ segir hann.

Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyrirkomulagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upplýsingum um þessi mál.

Steingrímur segir að markmiðið sé að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þingmanna og fullkomið gagnsæi ríki. „Þingmönnum er að auðvitað í sjálfsvald sett hvaða upplýsingum þeir koma sjálfir á framfæri um sín kjör, eins og verið hefur,“ segir hann.

„Alþingi hefur með markvissum hætti reynt að skapa góða umgjörð störf og kjör þingmanna, þar á meðal með siðareglum og reglum um hagsmunaskráningu þingmanna sem eru á vef þingsins. Sú aukna upplýsingagjöf sem í vændum er mun bætast þar við.“

Auglýsing

læk

Instagram