Stefna á að planta 20 þúsund trjám í Hekluskóga til þess að jafna kolefnissporið vegna aukinna ferðalaga íslenskrar tónlistar

Laugardaginn 11. Maí stóð ÚTÓN (Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar) fyrir trjáplöntunarferð að Hekluskógum undir því yfirskini að leiðrétta kolefnis fótspor sitt og íslenska tónlistargeirans sem er mikið á faraldsfæti. Rútuferðir til og frá Hekluskógum voru í boði Guðmundar Tyrfingssonar, og IKEA sá þáttakendum fyrir kleinum og ástarpungum. 10.000 tré voru gróðursett þennan eftirmiðdag.

Þessi fyrsta ferð skilaði 10.000 plöntum í jörð nálægt Sultartanga virkjuninni, rétt neðan við Heklu, á rúmlega fjórum tímum sem var u.þ.b. eitt tré á mínútu fyrir hvern þáttakenda, en auk starfsfólks ÚTÓN samanstóð ferðin af 45 sjálfboðaliðum í bland við íslenskt tónlistarfólk.

Önnur gróðursetningarferð verður farin þann 1. Júní, og stefnt verður að þvi að gróðursetja önnur 10.000 tré. Ferðin er þáttakendum að kostnaðarlausu og er skráning nú þegar opin og má skrá sig með því að smella hér. Tónlistarfólk sem hefur verið á faraldsfæti, fær forgang í ferðina.

ÚTÓN sér meðal annars um umsýslu Útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar og er því stöðugt að stuðla að ferðalögum íslenskra tónlistargeirans,  til og frá landinu með tilheyrandi kolefnis fótspori en okkur er mjög í mun að taka ábyrgð á vegferð þessarri, og gera okkar ýtrasta til að jafna metin, en nú þegar er áhrifa loftslagsbreytinga af mannavöldum farið að gæta á ýmsan máta í umhverfi okkar.

Hekluskógar eru eitt stærsta skógræktar verkefni sinnar tegundar í Evrópu um þessar mundir og er það helsta markmið þeirra að græða upp örfoka land í nágrenni eldfjallsins mikla með birkiskógi og stöðva þannig frekara öskufók  og gróðureyðingu, byggja upp nýtt lag af jarðvegi og gróðri sem bindur kolefni og vatn í jarðveginum og eykur með því fjölbreytileika tegunda í lifríkinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Hekluskógum þá binda 1000 silfur birki plöntur 70 tonn af kolefni á 30 ára tímabili á 0.5 hektörum af landi. Þar sem ÚTÓN bar ábyrgð á 70 tonnum af kolefni með flugi árið 2018, náum við með 10.000 trjám að leiðrétta það tífallt á næstu 30 árum eða ölluheldur að gera kolefnissporið fyrir 2018, neikvætt í raun.

Auglýsing

læk

Instagram