Steindi stendur við stóru orðin: Hleypur 21 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Neistann

Grínistinn Steindi Jr. ætlar að standa við stóru orðin hlaupa hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst. Hann hyggst hlaupa fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.

Eins og Nútíminn greindi frá í dag þá var Steindi kokhraustur í þættinum Sumarmorgnar á Rás 2 í morgun og sagði að það væri ekkert mál að hlaupa 21 kílómetra

Sóli Hólm hafði fengið áskorun frá Sölku Sól um að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og Steindi hló að því. „Tíu kílómetra? Það er bara eins og að hlaupa Bankastrætið,“ sagði hann léttur.

Ég veit að ég er með smá bumbu en ég gæti hlaupið tíu skítakílómetra. Ég gæti alveg hlaupið hálfmaraþon. Það er ekki það mikið.

Sóli og Salka efuðust reyndar um að hálfmaraþon sé ekkert mál en Steindi var hvergi banginn. „Ég get alveg hlaupið hálfmaraþon. Ég held að það sé ekkert mál. Þetta er ekki það langt. Þetta er soldið út í sjoppu og til baka. Ég lofað ykkur því að ég get það. Ég er klár,“ sagði hann.

Hann lýsti svo yfir að hann ætli að standa við stóru orðin. „Þetta var ákveðin skita, ég viðurkenni það. En ég mun standa við stóru orðin og hlaupa hálfmaraþon í ágúst,“ sagði hann á Facebook.

„Hægt er að heita á mig og leggja góðu málefni lið. Ég mun hlaupa fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. 21 km or die trying!“

Íslandsbanki hafði þetta að segja um málið

Auglýsing

læk

Instagram