today-is-a-good-day

Stjórnin og Páll Óskar á Þjóðhátíð í ár

Dagskrái Þjóðhátíðar í Eyjum í ár verður sífellt glæsilegri en nú hefur verið staðfest að Stjórnin og Páll Óskar munu koma fram í Dalnum í ár.

Stjórnin kom síðast fram saman á Þjóðhátíð árið 1990 og því orðið ansi langt síðan. Páll Óskar hefur hinsvegar verið fastagestur á sviðinu í Herjólfsdal síðastliðin áratug. Palli lokar hátíðinni í ár með klassísku PallaBalli.

Dagskráin verður fullmótuð í lok júní en enn á eftir að staðfesta nokkur atriði.

Dagskrá Þjóðhátíðar 2019:

Herra Hnetusmjör, Huginn, GDRN, Flóni, ClubDub, Friðrik Dór, JóiPéxKróli, SZK, Lukku Láki, GRL PWR, Bjartmar Guðlaugs, ÁMS, Aldamótatónleikarnir, Svala Björgvins og Egill Ólafs.

Auglýsing

læk

Instagram